Samfélagsstuðningur Landsbankans er mikilvægur liður í stefnu bankans um samfélagsábyrgð. Bankinn styður margvísleg samfélagsverkefni með fjárframlögum úr Samfélagssjóði, með stuðningi útibúa við verkefni í nærsamfélagi og með gagnkvæmum samstarfssamningum.
Landsbankinn leggur áherslu á að vera öflugur samherji viðskiptavina. Bankinn vill ekki aðeins veita fyrirtækjum framúrskarandi fjármálaþjónustu, heldur tekur bankinn þátt í fjölda verkefna sem hafa það leiðarstef að styðja við og efla þekkingu og fræðslu til fyrirtækja í ólíkum atvinnugreinum. Landsbankinn leitast við að auka þátttöku starfsmanna í samfélagsverkefnum, meðal annars með ráðgjöf.
Nánar um Gulleggið
Nánar um Svanna
Viðskiptalausnir á Einstaklingssviði bankans sjá um fjármálafræðslu til einstaklinga og eflingu fjármálalæsis. Markmiðið með fjármálafræðslunni er að tryggja að fólk hafi góða þekkingu á þeirri vöru og þjónustu sem fjármálafyrirtæki bjóða og þekki vel eigin fjármál. Víðtæk umfjöllun og fræðsla um efnahag og fjármál í víðum skilningi fer fram á Umræðunni, frétta- og efnisveitu Landsbankans sem fjallað er nánar um í næsta kafla þessarar skýrslu.
Landsbankinn hefur um árabil lagt áherslu á fjármálafræðslu fyrir ungmenni í framhaldsskólum, bæði yngri nemendur sem eru að hefja nám, sem og þá sem senn ljúka námi. Fræðslunni er ætlað að efla fjármálaskilning nemenda og gera þá betur í stakk búna til að gera áætlanir til framtíðar. Fræðsluheimsóknirnar standa öllum framhaldsskólum til boða og eru skipulagðar í samstarfi við fulltrúa þeirra.
Alls þáðu níu skólar boð um fjármálafræðslu árið 2017 og um 700 nemendur fengu heimsókn. Ekki fer fram kynning á vörum eða þjónustu bankans heldur er um að ræða almenna fjármálafræðslu. Starfsmenn í Þjónustuveri bankans hafa sinnt fræðslu á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn útibúa á landsbyggðinni hafa séð um kynningar í sínu nágrenni. Lögð er áhersla á að yngri starfsmenn sinni fræðslunni svo að hún sé sem næst því að vera á jafningjagrunni.
Landsbankinn tekur einnig virkan þátt í verkefninu Fjármálavit, sem er kennsluefni í fjármálafræðslu fyrir nemendur í eldri bekkjum grunnskóla. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) standa að verkefninu í samstarfi við aðildarfélögin og starfsfólk þeirra um land allt. Í ár hafa 35 starfsmenn Landsbankans tekið þátt í verkefninu og frætt nemendur víða um land. Fjármálavit hefur heimsótt alls 4000 nemendur í 10. bekkjum grunnskóla landsins í vetur.
Auk fræðslu til nemenda í grunn- og framhaldsskólum hefur Landsbankinn staðið fyrir fræðslukvöldum fyrir háskólanema í samstarfi við Stúdentaráð.
Nánar um fjármálafræðslu
Landsbankinn er einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Bankinn vill styðja við bakið á öflugu slysavarna- og björgunarstarfi um allt land. Slysavarnafélagið Landsbjörg er landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og ein stærstu sjálfboðaliðasamtök á Íslandi. Markmið starfseminnar er að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.
Nánar um starf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
Landsbankinn styður réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi heilshugar og hefur verið stoltur bakhjarl Hinsegin daga í Reykjavík frá upphafi. Árið 2017 var samstarfssamningur Hinsegin daga og Landsbankans endurnýjaður, auk þess sem samstarfið var eflt enn frekar með nýjum styrktarpotti. Markmiðið með Gleðigöngupottinum svokallaða er að styðja einstaklinga og smærri hópa við undirbúning og framkvæmd atriða í gleðigöngu Hinsegin daga og þannig auðvelda þátttöku í Hinsegin dögum.
Landsbankinn hefur verið aðili að klasasamstarfi í ferðaþjónustu frá upphafi samstarfsins árið 2012. Helsta markmið þess er að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun innan ferðaþjónustunnar og er verkefnið unnið í anda klasaaðferðafræði Michaels Porters. Að klasasamstarfinu standa lykilfyrirtæki á sviði ferðaþjónustu, opinberir aðilar og fyrirtæki sem styðja við eða eiga samstarf við greinina.
Ratsjáin er verkefni sem spratt upp úr ferðaklasanum. Þar gefst stjórnendum ferðaþjónustufyrirtækja tækifæri til að taka þátt í samstarfsverkefni með öðrum fyrirtækjum í sömu grein og draga lærdóm af reynslu annarra og miðla af eigin reynslu. Landsbankinn er einn aðal styrktaraðili verkefnisins.
Í janúar 2017 skrifaði Landsbankinn undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu sem var staðfest af forsvarsfólki yfir 250 fyrirtækja að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem er verndari verkefnisins. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel. Landsbankinn er einn af bakhjörlum verkefnisins ásamt sex öðrum fyrirtækjum.
Ábyrg ferðaþjónusta er hvatningarverkefni sem snýr að því að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar aðgerðir um ábyrga ferðaþjónustu. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna um ókomna tíð sem styður við sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir Íslendinga.
Landsbankinn er aðalbakhjarl Skólahreysti og leggur keppninni lið af krafti. Markmið Skólahreysti er að hvetja börn til að taka þátt í alhliða íþróttaupplifun sem byggð er á grunnforsendum almennrar íþróttakennslu og þar sem keppendur vinna að mestu leyti með eigin líkama í þrautum. Vinsældir Skólahreysti hafa aukist ár frá ári og keppa nú yfir 600 krakkar fyrir hönd sinna skóla, auk þess sem nokkur þúsund krakkar eru virkir félagar í stuðningsliðum. Auk Landsbankans nýtur Skólahreysti stuðnings mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Norrænu ráðherranefndarinnar, Toyota og Íþrótta- og ólympíusambandsins.
Nánar um Konur í orkumálum
Samtök um ábyrgar fjárfestingar á Íslandi voru stofnuð í nóvember 2017. Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni þekkingu og umræðu um aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Landsbankinn er eitt af 23 fyrirtækjum sem tók þátt í stofnun samtakanna en þeim er ætlað að vera óháður vettvangur fyrir umræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.
Landsbankinn er bakhjarl Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, ásamt tíu öðrum fyrirtækjum. Landsbankinn hefur styrkt Vigdísarstofnun með veglegum hætti síðustu ár og hefur styrkjunum verður varið til daglegrar starfsemi vegna undirbúnings stofnunarinnar. Vigdísarstofnun er starfrækt í Veröld – húsi Vigdísar sem var vígt 20. apríl 2017. Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar hlaut í nóvember 2011 samþykki Mennta-, vísinda-, og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir merkjum hennar.
Landsbankinn hefur átt mjög gefandi samstarf við UN Women á Íslandi undanfarin ár og verið bakhjarl landsnefndarinnar í mikilvægum verkefnum. Bankinn er til að mynda bakhjarl HeForShe-verkefnisins en markmið þess er að hvetja karla og stráka til að láta til sín taka í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna á öllum vígstöðvum. Landsbankinn skrifaði árið 2011 undir Jafnréttissáttmálann (Women’s Empowerment Principles – Equality Means Business), alþjóðlegt átak UN Women og UN Global Compact. Með undirskriftinni skuldbatt bankinn sig til að vinna að jafnréttismálum innan fyrirtækisins.
Nánar um UN Women
Nánar um Iceland Luxury
Nánar um Íslenska sjávarklasann