Landsbankinn hefur það að leiðarljósi að tekið sé tillit til umhverfissjónarmiða, félagslegra og efnahagslegra þátta í starfseminni. Áhersla hefur verið lögð á innleiðingu á stefnu um ábyrgar fjárfestingar og góður árangur hefur náðst í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna bílaflota bankans.
Samfélagsstefna bankans á að endurspegla það viðhorf að skýr stefna og markmið í samfélagsábyrgð hafi jákvæð áhrif á útlán og ávöxtun fjárfestinga til lengri tíma og dragi úr rekstraráhættu. Í ábyrgum fjárfestingum felst að sjálfbær langtímaarðsemi er háð virku og vel stýrðu vistkerfi, heilbrigðu hagkerfi og þjóðfélagi.
Landsbankinn leggur áherslu á að tekið sé tillit til samfélagslegra þátta í allri starfsemi bankans. Bankinn vill starfa í sátt við samfélagið og vera eftirsóttur vinnustaður þar sem metnaður, frumkvæði og hæfileikar starfsfólks fá notið sín.
Landsbankinn hefur það að leiðarljósi að tekið sé tillit til umhverfissjónarmiða í allri starfsemi bankans. Góður árangur hefur náðst í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna bílaflota bankans.
Aukin áhersla hefur verið lögð á samþættingu samfélagsábyrgðar í vöruframboði Landsbankans, ráðgjöf, fjárfestingum og lánveitingum.