Landsbankinn veitir einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum trausta og alhliða fjármálaþjónustu sem byggir á langtíma viðskiptasambandi. Bankinn annast hefðbundna útlána- og innlánastarfsemi en sinnir einnig markaðsviðskiptum, sjóðastýringu í dótturfélaginu Landsbréfum, fyrirtækjaráðgjöf, einkabankaþjónustu og eignastýringu. Höfuðstöðvar Landsbankans eru í Austurstræti 11 í Reykjavík og nærliggjandi húsum en þær hafa verið á því svæði frá upphafi. Árið 2017 tók bankaráð Landsbankans ákvörðun um að byggja húsnæði fyrir starfsemi bankans að Austurbakka 2 við Austurhöfn í Reykjavík. Landsbankinn rekur enga starfsemi utan Íslands.
Í árslok 2017 átti Ríkissjóður Íslands 98,2% eignarhlut í Landsbankanum. Landsbankinn átti sjálfur 1,50% hlut. Aðrir hluthafar, sem eru núverandi og fyrrverandi starfsmenn Landsbankans og fyrrum stofnfjáreigendur í Sparisjóði Vestmannaeyja og Sparisjóði Norðurlands (aðrir en íslenska ríkið), áttu 0,30%.
Á árinu 2017 jókst markaðshlutdeild bankans, hvort sem litið er til þjónustu við einstaklinga eða fyrirtæki. Markaðshlutdeild Landsbankans á einstaklingsmarkaði árið 2017 var 37,9% og hefur aldrei mælst hærri. Einstaklingum sem kjósa að eiga viðskipti við Landsbankann hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár og hefur bankinn nú verið með hæstu markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði í fjögur ár í röð.
Hjá Landsbankanum og dótturfélögum hans störfuðu 1.042 manns í 997 stöðugildum í árslok 2017, þar af 62% konur og 38% karlar. Kynjahlutföllin eru óbreytt á milli ára.
Allir starfsmenn bankans í bankastörfum eru meðlimir Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og falla undir kjarasamninga SA og Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).
Um Landsbankann | 31.12.2016 | 31.12.2017 | Breyting | |
---|---|---|---|---|
Einstaklingar í viðskiptum við Landsbankann* | 121.697 | 123.358 | 1% | |
Fyrirtæki í viðskiptum við Landsbankann | 12.923 | 13.503 | 4% | |
Útibú og afgreiðslur | 37 | 37 | 0% | |
Stöðugildi | 1.012 | 997 | -1% |
*Virkir viðskiptavinir
Helstu kennitölur (ma.kr.) | 31.12.2015 | 31.12.2016 | 31.12.2017 | |
---|---|---|---|---|
Hreinar rekstrartekjur | 72.363 | 48.700 | 53.512 | |
Hagnaður eftir skatta | 36.460 | 16.643 | 19.766 | |
Arðsemi eiginfjár eftir skatta | 14,8% | 6,6% | 8,2% | |
Eiginfjárhlutfall (CAR) | 30,4% | 30,2% | 26,7% | |
Vaxtamunur eigna og skulda | 2,2% | 2,3% | 2,5% | |
Kostnaðarhlutfall | 43,8% | 48,4% | 46,1% | |
Heildareignir | 1.118.658 | 1.111.157 | 1.192.870 | |
Útlán sem hlutfall af innlánum viðskiptavina | 145,2% | 144,7% | 153,0% |
Fjöldi starfsmanna eftir ráðningarformi | Fastráðning | Lausráðning | Tímabundin ráðning | Samtals |
---|---|---|---|---|
Karl | 380 | 8 | 10 | 398 |
Kona | 598 | 19 | 27 | 644 |
Samtals | 978 | 27 | 37 | 1.042 |
Landsbankinn tekur þátt í eftirfarandi samstarfi um samfélagsábyrgð.
Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð. Landsbankinn var einn af stofnaðilum Festu árið 2011.
United Nations Global Compact. Landsbankinn hefur verið þátttakandi í UN Global Compact á heimsvísu frá árinu 2006.
United Nations Principles for Responsible Investment (UN PRI). UN PRI eru samtök fjárfesta, sjóðafyrirtækja og greinenda sem hafa það að markmiði að innleiða umhverfis- og samfélagssjónarmið, auk góðra stjórnarhátta, í ákvarðanatöku við fjárfestingarákvarðanir.
United Nations Environmental Programme Financial Initiative (UNEP-FI). Landsbankinn var einn af stofnaðilum UNEP-FI árið 1992.
IcelandSIF, samtök um ábyrgar fjárfestingar á Íslandi. Landsbankinn var einn af stofnaðilum IcelandSIF árið 2017. Tilgangur samtakanna er að efla þekkingu fjárfesta á aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga og auka umræður um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.
Landsbankinn undirritaði í nóvember 2015 yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum ásamt rúmlega 100 íslenskum fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við Reykjavíkurborg og Festu.
Landsbankinn fylgir viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja og gerir grein fyrir þessum þætti í stjórnarháttayfirlýsingu bankans ár hvert. Þar koma einnig fram nánari upplýsingar um bankaráð og undirnefndir þess.
Árlega gerir Landsbankinn úttekt á því hvort viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti sé fylgt og hvort stjórnarhættir bankans á hverjum tíma séu í samræmi við þær leiðbeiningar.
Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti tilkynnti í mars 2017 um endurnýjun á viðurkenningu Landsbankans sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir tímabilið 2016-2017. Viðurkenningin byggir á úttekt Deloitte ehf. á stjórnarháttum bankans sem fram fór í janúar 2017. Úttektin tekur mið af „Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti“ sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Viðurkenningin er fyrst og fremst veitt til þess að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.