Rekja má innleiðingu samfélagsábyrgðar í Landsbankanum með því að lesa samfélagsskýrslur bankans í gegnum árin. Við efnistök og afmörkun skýrslunnar var litið til eftirfarandi atriða.
Lögð er áhersla á starfsemi Landsbankans án dótturfélaga, nema annað sé tekið fram. Fjallað er um sömu viðmið og í fyrri skýrslum.
Skýrslan endurspeglar þekkingu bankans á viðfangsefninu á þeim tíma sem hún er rituð. Með útgáfu skýrslunnar er ekki gefið í skyn að bankinn þekki til fulls áhrif sín á samfélagið, né heldur að samfélagsábyrgð hafi verið að fullu innleidd í bankanum.
Tilvísunartafla sem fylgir skýrslunni skýrir að hve miklu leyti grein er gerð fyrir hverju viðmiði. Um sum viðmiðanna er fjallað ítarlega í skýrslunni á meðan einungis er gerð grein fyrir öðrum í tilvísunartöflunni. Til að forðast endurtekningar má finna upplýsingar um einstök viðmið í tilvísunartöflunni sem vísa til annarra miðla og skýrslna bankans þar sem við á.
Allar upplýsingar í skýrslunni eiga við um almanaksárið 2017. Landsbankinn hvetur lesendur til að senda bankanum ábendingar á samskipti@landsbankinn.is um hvaðeina sem betur má fara í þeim hluta starfseminnar sem snýr að samfélagsábyrgð, sem og ábendingar um úrbætur á framsetningu skýrslunnar.
1 Samfélagsskýrslur Landsbankans eru aðgengilegar á vef bankans,
http://bankinn.landsbankinn.is/samfelagsleg-abyrgd/skyrslur/.
2 Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sérfræðingur í samfélagsábyrgð.